Ráðið í tvær sérnámsstöður í heilsugæsluhjúkrun á HSN

Berglind Ragnarsdóttir og Kristey Þráinsdóttir hafa verið ráðnar í sérnámsstöður í heilsugæsluhjúkrun við HSN frá hausti 2019.

Berglind Ragnarsdóttir og Kristey Þráinsdóttir.
Berglind Ragnarsdóttir og Kristey Þráinsdóttir.

Berglind Ragnarsdóttir og Kristey Þráinsdóttir hafa verið ráðnar í sérnámsstöður í heilsugæsluhjúkrun við HSN frá hausti 2019. 

Þær eru báðar starfsmenn HSN Húsavík. 

Sérnám í heilsugæsluhjúkrun er 60 eininga diplómanám og er samstarfsverkefni milli Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, Háskólans á Akureyri og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Námið skiptist í klíníska vinnu á starfsstöðvun HSN, námslotur við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Háskólann á Akureyri ásamt kynnisheimsóknum á ýmsar starfsstöðvar.

Markmið sérnámsins er að auka þekkingu og færni hjúkrunarfræðinga í viðfangsefnum heilsugæsluhjúkrunar. Hlutverk heilsugæslunnar er skoðað út frá samfélagslegri ábyrgð hennar í þeim tilgangi að efla færni sérnámshjúkrunarfræðinga í að vinna að þróun og framgangi heilsugæslunnar innan samfélagsins.

Sérstök áhersla er lögð á lausnamiðaða nálgun sem og þróun og styrkingu sérnámshjúkrunarfræðings sem sjálfstæðs meðferðaraðila í þverfaglegu samstarfi.

Námið felur m.a. í sér greiningu á tækifærum innan heilsugæslunnar og hvernig þróa megi þjónustu á þessu sviði til framtíðar ásamt því að kynnast sérhæfðu skipulagi almannavarna varðandi náttúruhamfarir eða útbreiðslu sjúkdóma. hns.is


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744