Pálmi skoraði glæsimark

Það er alltaf gaman að fylgjast með Völsungum hvar sem þeir spila og í gær skoraði Pálmi Rafn Pálmason eitt af mörkum ársins í norsku úrvalsdeildinni í

Pálmi skoraði glæsimark
Íþróttir - - Lestrar 449

Pálmi Rafn með ungum Völsungum.
Pálmi Rafn með ungum Völsungum.

Það er alltaf gaman að fylgjast með Völsungum hvar sem þeir spila og í gær skoraði Pálmi Rafn Pálmason eitt af mörkum ársins í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Pálmi Rafn kom þá sínum mönnum á bragðið þegar lið hans Lilleström gerði 2:2 jafntefli við Viking.

Á mbl.is segir að húsvíkingurinn knái hafi komið sínum mönnum í 2:0 með glæsilegri hjólhestaspyrnu en Pálmi Rafn hefur átt það til að skora falleg mörk og er þetta mark hans eitt af mörkum ársins í Noregi að mati fjölmiðla þar í landi. 

Myndband af markinu má sjá hér fyrir neðan 

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744