Óveður framundan á Húsavík

Vegna veðurútlits nú í kvöld og næstu nótt er ljóst að það versta af veðrinu er framundan á Húsavík og í Þingeyjarsýslum

Óveður framundan á Húsavík
Almennt - - Lestrar 349

Foreldrar náðu í börn sín í skólann í dag.
Foreldrar náðu í börn sín í skólann í dag.

Vegna veðurútlits nú í kvöld og næstu nótt er ljóst að það versta af veðrinu er framundan á Húsavík og í Þingeyjarsýslum

Í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra segir að úrkoma og kólnandi veður segi okkur það að reikna megi með mikilli ófærð, bæði í dreifbýli og sérstaklega innanbæjar á Húsavík, í fyrramálið. 

Vegna þessa hafa Almannavarnir í héraði og fulltrúar Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra tekið undir með, og ráðlagt skólastjórnendum Borgarhólsskóla og Grænuvalla á Húsavík, að hafa skólana lokaða á morgun, miðvikudag og fólk sé því ekki að fara út í veðrið og ófærðina að óþörfu með börnin sín.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Skólahaldi í Borgarhólsskóla lauk kl. 13 í dag og náðu foreldrar í börn sín.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744