Öskudagurinn á Húsavík.

Mikið líf og fjör var á Húsavík í dag, líkt og ávallt á öskudag. Fljótlega upp úr birtingu fór ungviðið að fara á milli verslana, stofnana og

Öskudagurinn á Húsavík.
Almennt - - Lestrar 834

Karen Dís Aðalgeirsdóttir á öskudagsballi.
Karen Dís Aðalgeirsdóttir á öskudagsballi.

Mikið líf og fjör var á Húsavík í dag, líkt og ávallt á öskudag. Fljótlega upp úr birtingu fór ungviðið að fara á milli verslana, stofnana og fyrirtækja þar sem þau tóku lagið og þáðu ýmiskonar góðgæti að launum.

 Börnin voru skrautlega búin í hinum ýsmu gerfum og t.a.m sást bæði til köngulóamannsins og Sollu stirðu á ferðinni í miðbænum. Síðdegis var svo fjölmenni á öskudagsballi í íþróttahöllinni þar sem m.a. kötturinn var sleginn úr tunnunni.

 

  Þjóðtrúin segir að öskudagurinn eigi sér átján bræður. Miðað við hvernig veðrið var í dag  ættu húsvíkingar, sem og aðrir þingeyingar, að eiga ágætistíð í vændum næstu vikurnar. Spáir reyndar stormi á morgum.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744