03. okt
Opið hús hjá Rauða krossinumFréttatilkynning - - Lestrar 555
Í framhaldi af kynningarviku Rauða krossins 26. september til 2. október, ætlar Rauði krossinn í Þingeyjarsýslu að vera með opið hús í Nausti á Húsavík þriðjudaginn 4. október milli kl 17 og 19.
Við hvetjum íbúa í Þingeyjarsýslu til að kíkja til okkar og kynna sér starfsemi deildarinnar. Ný neyðarvarnakerra verður til sýnis ásamt þeim búnaði sem í henni er. Heitt verður á könnunni og bakkelsi frá Heimabakarí.
Allir velkomnir