Opið hús hjá Rauða krossinum

Í framhaldi af kynningarviku Rauða krossins 26. september til 2. október, ætlar Rauði krossinn í Þingeyjarsýslu að vera með opið hús í Nausti á Húsavík

Opið hús hjá Rauða krossinum
Fréttatilkynning - - Lestrar 556

Í framhaldi af kynningarviku Rauða krossins 26. september til 2. október, ætlar Rauði krossinn í Þingeyjarsýslu að vera með opið hús í Nausti á Húsavík þriðjudaginn 4. október milli kl 17 og 19.

Við hvetjum íbúa í Þingeyjarsýslu til að kíkja til okkar og kynna sér starfsemi deildarinnar. Ný neyðarvarnakerra verður til sýnis ásamt þeim búnaði sem í henni er. Heitt verður á könnunni og bakkelsi frá Heimabakarí.

Allir velkomnir


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744