Nýr sparisjóðsstjóri hjá Sparisjóði Suður – Þingeyinga

Anna Karen Arnarsdóttir hefur verið ráðinn sparisjóðsstjóri hjá Sparisjóði Suður-Þingeyinga og mun hefja störf 13. janúar nk.

Anna Karen Arnarsdóttir
Anna Karen Arnarsdóttir

Anna Karen Arnarsdóttir hefur verið ráðinn sparisjóðsstjóri hjá Sparisjóði Suður-Þingeyinga og mun hefja störf 13. janúar nk.

Anna  Karen er viðskiptafræðingur með MSc í fjármálum og stjórnun frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn og BSc í viðskiptafræði frá sama skóla.  Auk þess hefur hún lokið iðnrekstrarfræði frá Tækniskóla Íslands.

Anna Karen hefur síðustu sex ár starfað hjá Seðlabanka Íslands, lengst af í markaðsviðskiptum og fjárstýringu.

Anna Karen er fædd á Húsavík en fluttist þaðan tveggja ára. Maki hennar er Kári Marís Guðmundsson, verkfræðingur og eiga þau þrjú börn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744