Ný stjórn Ţingeyingafélagsins - Ađventukaffi 2. desemberFréttatilkynning - - Lestrar 806
Dögg Matthíasdóttir tók viđ formennsku af Andra Val Ívarssyni. Ađrir í stjórn eru: Andri Valur Ívarsson, Friđgeir Bergsteinsson, Anna Karen Unnsteinsdóttir, Guđrún Hulda Jónsdóttir, Teitur Erlingsson, Una María Óskarsdóttir og Guđný María Arnţórsdóttir.
Ţeirra fyrsta verk er ađventukaffiđ vinsćla og árlega sem er haldiđ nú í ár á Hótel Natura sem áđur hét Hótel Loftleiđir, Nauthólsvegi, 101 Reykjavík ţann 2.desember 2018.
Ţráinn Árni Baldvinsson tónlistarkennari í Norđlingaskóla og gítarleikari Skálmaldar mun flytja okkur fáein lög. Ţráinn er úr Torfunesi í Köldukinn.
Hrannar Pétursson sonur hjónanna Péturs Skarphéđinssonar og Sólveigar Jónsdóttur flytur hugvekju um bernskujólin á Húsavík. Hrannar er ráđgjafi og fyrirlesari og hefur víđa komiđ viđ. Hann hefur starfađ sem ađstođarmađur ráđherra, framkvćmdastjóri, sjónvarpsfréttamađur og upplýsingafulltrúi svo fátt eitt sé nefnt.
Hildur Knútsdóttir er dóttir Knúts Árnasonar sem ćttađur er úr Kinninni og Guđrúnar Sigurjónsdóttur, dóttur Sigurjóns Jóhannessonar fyrrum skólastjóra og Herdísar Guđmundsdóttur á Húsavík. Hildur kynnir nýja bók sína Ljóniđ sem er fyrsta bókin í nýjum ţríleik eftir ţennan margfalda verđlaunahöfund.
Guđný María Arnţórsdóttir tónlistarkona úr Garđshorni í Köldukinn flytur frumsamin jólalög sem heita Jólin splunkuný og Ţađ eru jól. Tónlistarsnillingurinn Reynir Jónasson verđur međ nikkuna og stýrir fjöldasöng ađ venju.
Ţetta verđur notaleg stund á ađventunni međ fjölskyldu og vinum og hefur veriđ fjölmenni síđustu ár. Veriđ velkomin.