Ný stjórn kjörin á ađalfundi Markađsstofu Norđurlands

Fimmtudaginn 30. maí var ađalfundur Markađsstofu Norđurlands haldinn á Verbúđinni 66 í Hrísey.

Ný stjórn kjörin á ađalfundi Markađsstofu Norđurlands
Fréttatilkynning - - Lestrar 178

Fimmtudaginn 30. maí var ađalfundur Markađsstofu Norđurlands haldinn á Verbúđinni 66 í Hrísey.

Kosiđ var um lausar stöđur í stjórn en eitt sćti var laust á Norđurlandi vestra og eitt á Norđurlandi eystra. Kosiđ er í hvert sćti til tveggja ára.

Á Norđurlandi vestra barst eitt frambođ, frá Erni Arnarsyni sem hefur veriđ í stjórn undanfarin ár.
Taldist hann ţví sjálfkjörinn og verđur áfram í stjórn nćstu tvö ár hiđ minnsta.

Á Norđurlandi eystra bárust ţrjú frambođ. Edda Hrund Skagfield Guđmundsdóttir frá Berjayja Akureyri, Helga Nína Helgadóttir frá SBA og Jónas Ţór Karlsson frá Sýsla ferđum gáfu kost á sér. Niđurstađa kosningar var sú ađ Edda Hrund hlaut flest atkvćđi, og kemur hún ţví inn í stjórn nćstu tvö ár hiđ minnsta.

Á fundinum var einnig tilkynnt ađ nýr fulltrúi kćmi inn fyrir hönd SSNV í stjórn, en ţađ er Katrín M. Guđjónsdóttir framkvćmdastjóri SSNV. 

Tvö frambođ bárust um varamenn í stjórn, frá Tómasi Árdal hjá Arctic Hotels og Ţorbjörgu Jóhannsdóttur frá Höldi. Bćđi voru ţau varamenn áđur og ţar sem engin önnur frambođ voru ţau sjálfkjörin til eins árs.

Ný stjórn er eftirfarandi: Viggó Jónsson -Drangeyjarferđir, Sara Sigmundsdóttir - Elding Hvalaskođun, Ármann Örn Gunnlaugsson - GeoSea, Örn Arnarson - Hótel Laugarbakki, Edda Hrund Skagfield Guđmundsdóttir - Berjaya hótel. Fulltrúi SSNE er Hilda Jana Gísladóttir og fulltrúi SSNV er Katrín M. Guđjónsdóttir. Varamenn: Tómas Árdal - Arctic Hotels og Ţorbjörg Jóhannsdóttir - Höldur.

Sigrún Huld Sigmundsdóttir frá Berjaya hótelum lauk ţar međ setu sinni í stjórn MN til fjögurra ára. Henni eru fćrđar ţakkir fyrir vel unnin störf í ţágu ferđaţjónustu á Norđurlandi.

Ađ loknum ađalfundarstörfum voru ţrjú erindi. Jóhannes Ţór Skúlason fór yfir tekjur sveitarfélaga af ferđaţjónustu á Norđurlandi, Ársćll Harđarson sagđi frá fjarmörkuđum í Asíu og Linda María Ásgeirsdóttir sagđi frá ferđaţjónustu í Hrísey.

Ađsend mynd

Hluti af nýrri stjórn á ađalfundi í Hrísey. Frá vinstri: Viggó Jónsson, Edda Hrund Skagfield Guđmundsdóttir, Sara Sigmundsdóttir, Katrín M. Guđjónsdóttir, Ţorbjörg Jóhannsdóttir, Örn Arnarson. Fjarverandi voru Ármann Örn Gunnlaugsson, Tómas Árdal og Hilda Jana Gísladóttir.


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744