Norræn myndbandasamkeppni fyrir hugmyndaríka krakka

Norræna verkefnið NordMar Biorefine sem Matís stýrir hefur sett af stað myndbandasamkeppni fyrir ungmenni á aldrinum 14-19 ára.

Norræn myndbandasamkeppni fyrir hugmyndaríka krakka
Fréttatilkynning - - Lestrar 42

Norræna verkefnið NordMar Biorefine sem Matís stýrir hefur sett af stað myndbandasamkeppni fyrir ungmenni á aldrinum 14-19 ára. 

Keppnin er opin öllum á þessum aldri á Norðurlöndunum, þar með talið á Íslandi.

Markmiðið með myndbandakeppninni er að höfða til frumkvöðlahugsunar unga fólksins en með myndböndunum gefst því kostur á að setja fram sínar hugmyndir um hvernig nýta megi auðlindir hafs og vatns á nýjan eða betrum bættan hátt. Sérstök áhersla er lögð á þær auðlindir sem eru van- eða ónýttar. Myndböndin mega vera hvernig sem er, þ.e. leikin, heimildamyndir, teiknimyndir o.s.frv. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir besta myndbandið!

Nánari upplýsingar og skýringarmyndband á íslensku má finna á vefsíðu Matís hér:  https://matis.is/frettir/norraen-myndbandasamkeppni-vertu-med/ 

Og á vefsíðu NordMar Biorefine hér: https://bluebioportal.com/video-contest/ 

NordMar Biorefine verkefnið gengur út á það að kanna möguleikana sem felast í fullnýtingu þeirra sjávarauðlinda sem nýttar eru á Norðurlöndunum með lífmassaverum. Samhliða þeirri vinnu hafa Norræn lífmassaver verið nýtt sem fyrirmyndir áframhaldandi uppbyggingar Matís á lífmassaveri í Neskaupstað sem mun meðal annars stuðla að aukinni fullnýtingu sjávarauðlinda.  

Myndbandasamkeppnin er einungis einn margra þátta NordMar Biorefine. Meðal annarra þátta eru mat á hagkvæmni og möguleikum lífmassavera fyrir bláa lífhagkerfið á Norðurlöndunum, og myndun tengslanets sérfræðinga á þessu sviði í hinu svokallaða BlueBio Portal.

Verkefnið er eitt þeirra verkefna sem hófst út frá áherslumálum Norrænu Ráðherranefndarinnar þegar Ísland gegndi formennsku árið 2019.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744