Norðurþing STÆKKAR kolefnisspor sitt!

Á sama tíma og alvörusveitarfélög gera allt til að sporna við sóun og reyna að minnka kolefnisspor sitt, þá erum við hér í Norðurþingi langt á undan

Norðurþing STÆKKAR kolefnisspor sitt!
Aðsent efni - - Lestrar 229

Ljósmynd Sigurjón Ben.
Ljósmynd Sigurjón Ben.

Á sama tíma og alvörusveitar-félög gera allt til að sporna við sóun og reyna að minnka kolefnisspor sitt, þá erum við hér í Norðurþingi langt á undan hamförunum og STÆKKUM okkar kolefnisspor. 

Allir sem hafa gripsvit er ljóst að tré og gróður eru lungu jarðar. Nú er verið að fella saklausar aspir fyrir utan skrifstofur Norðurþings. Ákvörðun tekin af einhverri embættisdulunni á ábyrgð stjórnmálamanna. Sjálfsagt eftir langa og stranga fundi.

Líklegast tengist þetta alvarlegri og smitandi kulnun á skrifstofum bæjarins og því mikilvægt að hita hraustlega upp andrúmsloftið. Meira svona Norðurþing....koma svo. Það eru ennþá eftir nokkur 60 ára gömul tré í bænum , ekki mörg þó. Svo er bara að urða líkin út í gryfju og setja á sig hauspoka.

Sigurjón Benediktsson.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744