Neyðarskorsteinar opnuðust í 15 mínúturAlmennt -  - Lestrar 626
			
		Síðdegis í gær varð bilun í tölvubúnaði verksmiðju PCC BakkaSilicon á Bakka sem olli því að neyðarskorsteinar opnðust í 15 mínútur.
Í tilkynningu segir að í kjölfarið hafi verið sjáanlegur reykur frá verksmiðjunni í skamma stund. Svona atvik geta komið upp einstaka sinnum og ávallt er brugðist strax við til að tryggja að svona ástand vari í sem stystan tíma.
Það er greinileg sjónmengun þegar þetta gerist en svona stutt opnun skorsteina hefur ekki veruleg árif á loftgæði, mælistöðvar sýna að loftgæði fóru ekki yfir heilsuverndarmörk, sem eru 50 µg/m3 yfir sólarhring.
Unnið er að greiningu á orsök bilunarinnar og er mikil áhersla lögð á að hafa svörin eins fljótt og auðið er. PCC BakkiSilicon er mikið í mun að starfa í sátt og samlyndi við samfélagið og harmar þetta atvik.
Fyrirtækið vill benda aftur á heimasíðu Umhverfisstofnunar, www.loftgaedi.is, þar sem hægt er að fyljgast með loftgæðum við Bakka.

 































 
									 


 
 

 
 






























 640.is á Facebook
 640.is á Facebook