Nemendur og starfsfólk Borgarhólsskóla láta gott af sér leiðaAlmennt - - Lestrar 155
Undanfarin ár hafa nemendur og starfsfólk Borgarhólsskóla látið gott af okkur leiða og látið fé rakna til góðgerðarmála.
Í stað þess að nemendur og starfsfólk skiptist á gjöfum á Litlu jólum fær hver nemandi afhent umslag til að fara með heim og setja í það pening.
Frá þessu segir á heimasíðu skólans en það er hverjum og einum frjálst hversu há upphæð fer í umslagið kjósi viðkomandi að styrkja málefnið. Stjórnendur skólans völdu að framlag skólans renni í Velferðarsjóð Þingeyinga, bæði nemenda og starfsfólks.
Skólinn afhendir Velferðarsjóðnum nú 179.599 kr. frá nemendum og starfsfólki sem nýtist vonandi vel yfir hátíðirnar.
Munum að margt smátt gerir eitt stórt.
Í desember 2008 var Velferðarsjóðurinn stofnaður til að styðja fjárhagslega við bakið á fjölskyldum og einstaklingum, sem eiga um sárt að binda á starfsvæði Félagsþjónustu Norðurþings.