Mývatnsmaraþonið verður hlaupið um helgina

Nú er um að gera að skella sér í hlaupaskónna og taka þátt í Mývatnsmaraþoni.

Mývatnsmaraþonið verður hlaupið um helgina
Fréttatilkynning - - Lestrar 307

Mývatnsmaraþonið fer fram 7. júní.
Mývatnsmaraþonið fer fram 7. júní.

Nú er um að gera að skella sér í hlaupaskónna og taka þátt í Mývatnsmaraþoni. 

Hið árlega Mývatnsmaraþon verður þreytt laugardaginn 7. júni. Hlaupið hefst og endar í Jarðböðunum við Mývatn og hlaupið verður eftir þjóðveginum í kringum Mývatn. Það reynir vel á þol og styrk hlaupara í Mývatnsmaraþoni þar sem endaspretturinn getur tekið verulega á og þá er nú gott að vita að það verða Powerade drykkjarstöðvar í hlaupinu á 5 km fresti.
 

Sveitakeppni er í öllum vegalengdum nema 3 km. Sveitakeppnin er opinn flokkur og hámark 5 manns í hverjum hóp þar sem 3 bestu tímarnir gilda.

Allir sem ljúka keppni fá verðlaunapening, stuttermabol merktan hlaupinu, grillveislu og ókeypis í jarðböðin við Mývatn. Einnig verða veitt sérstök útdráttarverðlaun.

Upplýsingar um verð, skráningu og tímasetningar er að finna á www.visitmyvatn.is og hægt verður að skrá sig til leiks fram á keppnisdag.

Mývatnsmaraþon er frábær upplifun þar sem náttúran spilar stórt hlutverk.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744