Myndir frá komu Donnu Wood til HúsavíkurAlmennt - - Lestrar 395
Eins og sagt var frá á 640.is kom skonnortan Donna Wodd til hafnar á Húsavík í gær en Norðursigling festi kaup á henni i vetur.
Fjölmenni var á bryggjunni til að fagna komu hennar og hér eru nokkrar myndir teknar við það tækifæri.
Eins og áður er hægt að smella á þær, fletta þeim og skoða í stærri upplausn.
Skonnortan Donna Wood siglir fyrir Bökugarðinn.
Heldur dumbungslegt veður þegar hún kom.
Guðmundur Árni Stefánsson klár með endana eftir sína fyrstu ferð yfir hafið.
Guðbjartur Ellert Jónsson framkvæmdarstjóri Norðursiglingar og Tryggvi Jóhansson hafnarstjóri Norðurþings.
Hörður Sigurbjarnarson og Sigríður Þ. Einarsdóttir ásamt Tryggva hafnarstjóra.
Heimir Harðarson sigldi á Donnu Wood heim er hér ásamt syni sínum.
Hörður Sigurbjarnar sýnir Ellert Guðjónssyni tækin á stjórnpalli, Ellert er gamall skipstjóri nú síðast á Húna II.
Þýskur skipstjóri sem sigldi Donnu heim er hér með Sigríði Einarsdóttur i matsal á þilfari.
Hér koma nokkrar myndir sem Gaukur Hjartarson tók.
Beðið eftir Donnu Wood.
Áhöfnin sem sigldi skonnortunni heim frá Kaupmannahöfn.
Stjórnpallur Donnu Wood.
Glæsilegur salur á þilfari.