21. jún
			Mynd dagsins - Horft á fótbolta úr brekkunniMynd dagsins -  - Lestrar 622
			
		Þá er boltinn farinn að rúlla mörgum til gleði, en mynd dagsins var tekin í dag á leik kvennaliðs Völsungs og Keflavíkur.
Myndin sýnir Þórstein Glúmsson frá Vallakoti í Reykjadal hvar hann situr í sóleyjarhafi við niðri enda gamla kirkjugarðsins og horfir á leikinn.
Það er skemmst frá því að segja að gestirnir fóru heim með öll stigin þrjú í farkestinu. Skoruðu fjögur mörk án þess að heimakonur næðu að svara fyrir sig.
Þórsteinn Glúmsson frá Vallakoti horfir hér á leik Völsungs og Keflavíkur í Lengjudeild kvenna.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.


 































 
									 


 
 

 
 






























 640.is á Facebook
 640.is á Facebook