Mynd dagsins - Glitský á himni

Mynd dagsins var tekin við Húsavíkurslipp í dag þegar glitský gerðu vart við sig á himni.

Mynd dagsins - Glitský á himni
Mynd dagsins - - Lestrar 110

Mynd dagsins var tekin við Húsavíkurslipp í dag þegar glitský gerðu vart við sig á himni.

Á vef Veðurstofu Íslands segir að glitský séu ákaflega fögur ský sem myndast í heiðhvolfinu, gjarnan í um 15 - 30 km hæð. 

Glitský sjást helst um miðjan vetur, um sólarlag eða sólaruppkomu. Litadýrð þeirra er mjög greinileg því þau eru böðuð sólskini, þótt rökkvað sé eða jafnvel aldimmt við jörð.

Litadýrðin þykir minna á þá liti sem sjá má í hvítu lagi sem er innan á sumum skeljum (s.n. ,,perlu-móður''-lag í perluskeljum) og eru þau í ýmsum tungumálum því nefnd perlumóðurský.

Lesa má nánar um glitskýin hér 

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744