Mynd dagsins - Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins

Mynd dagsins var tekin í gærmorgun þegar fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur.

Mynd dagsins - Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins
Mynd dagsins - - Lestrar 139

Skemmtiferðaskipið Hamburg kom í gærmorgun.
Skemmtiferðaskipið Hamburg kom í gærmorgun.

Mynd dagsins var tekin í gærmorgun þegar fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur.

þar var á ferðinni Hamburg sem hefur heimahöfn í Nassau á Bahamaeyjum.

Skipið er 144 metra langt og mælist 15,067 GT að stærð og tekur 420 farþega.

Hamburg var sem áður segir fyrsta skipið sem kemur til Húsavíkur þetta sumarið en bókaðar eru um fjörutíu komur í sumar. Það er þó einungis áætlun sem getur breyst á báða vegu.

Hamburg hélt ferð sinni áfram síðdegis.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í betri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744