Mynd dagsins - Framkvæmdir við Hafnarstétt 1 og 3Mynd dagsins - - Lestrar 272
Mynd dagsins var tekin nú síðdegis og í forgrunni hennar eru Hvalasafnið og Langanes-húsið sem standa við Hafnar-stétt 1 og 3.
Eins og kunnugt er keypti Langanes ehf. húsnæði það sem Steinsteypir ehf. átti á neðri hæð Hvalasafnsins að Hafnarstétt 1.
Fyrir á fyrirtækið Hafnarstétt 3 sem Þekkingarnet Þingeyinga hefur leigt um langa tíð og mun það einnig leigja Hafnarstétt 1.
Í vetur hefur verið unnið að því að breyta húsnæðinu með það í huga að opna þar frumkvöðla- og nýsköpunarsetur og tengja með viðbyggingu Hafnarstétt 1 og 3.
Húsnæðið sem hýsa mun setrið er um 1000 fm að stærð en það fæst með því að tengja Hafnarstétt 3 yfir í neðri hæð Hvalasafnsins að Hafnarstétt 1 með viðbyggingu úr gleri. Það er arkitektinn Arnhildur Pálmadóttir sem er arkitektinn á bak við breytinguna á húsnæðinu.
Og í morgun hófust framkvæmdir við að tengja húsnæðin saman með jarðvegsframkvæmdum eins og sjá má ef rýnt er í myndina.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.