Metumferð í júlí á Hringveginum

Umferðin á Hringvegi í nýliðnum júlí jókst um nærri sex prósent miðað við sama mánuð árið 2020.

Metumferð í júlí á Hringveginum
Almennt - - Lestrar 110

Brúin við Grímsstaði á Fjöllum
Brúin við Grímsstaði á Fjöllum

Umferðin á Hringvegi í nýliðnum júlí jókst um nærri sex prósent miðað við sama mánuð árið 2020.

Þetta kemur fram á vef Vegagerðrinnar.

Met var slegið í mánuðinum en umferðin reyndist 2,3 prósentum meiri en í júlí 2019 þegar fyrra met var sett. Mest jókst umferðin á Austurlandi. Frá áramótum hefur umferðin aukist um tæp 10 prósent miðað við sama tíma fyrir ári. Útlit er nú fyrir að umferðin í ár geti aukist um 12 prósent en yrði eigi að síður minni en umferðin var árið 2019. Um Verslunarmannahelgi jókst umferðin mikið frá því í fyrra, en var heldur minni um Hellisheiði en um sömu helgi 2019 en sú sama um Hvalfjarðargöng. 

 Milli mánaða

Umferðin um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi reyndist tæplega 6% meiri í nýliðnum júlí borið saman við sama mánuð á síðasta ári.  Umferðin reyndist mun meiri en spár gerðu ráð fyrir og var slegið nýtt met í umferðinni um lykilteljarana 16.  Fyrra metið var frá árinu 2019 og reyndist umferðin nú 2,3% meiri en gamla metið.

Umferð jókst á öllum landssvæðum en mest um teljarasnið á Austurlandi eða rúmlega 23% en minnst um hb.svæðið eða 0,4%.

Umferð jókst einnig í öllum sniðum fyrir utan eitt, við Úlfarsfell en þar varð 1,3% samdráttur, en mest jókst umferð um mælisnið á Möðrudalsöræfum eða tæp 34%

Lesa nánar á vef Vegagerðarinnar 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744