Meistara Bowie minnst á tónleikum í Hörpu

Í kjölfar óvænts fráfalls eins mesta snillings tónlistarsögunnar er það með lotningu sem hér með tilkynnist að blásið verður til minningatónleika í

Meistara Bowie minnst á tónleikum í Hörpu
Fréttatilkynning - - Lestrar 816

Í kjölfar óvænts fráfalls eins mesta snillings tónlistarsögunnar er það með lotningu sem hér með tilkynnist að blásið verður til
minningatónleika í Eldborgarsal Hörpu föstudagskvöldið 29. apríl. 2016.
 
Á tónleikunum mun verða leitast við að heiðra minningu Bowie á tignarlegan og heiðvirðan hátt þannig að tónlist hans megi njóta
sín sem best í flutningi afar fjölbreytts hóps okkar fremstu flytjenda. Fjársjóðir Bowie í lagasmíðum eru endalausir og
fjölbreytnin ótrúleg. Öll þau tímabil og blæbrigði sem ferill hans spannar munu skapa ógleymanlega stemmingu þetta kvöld í Hörpu.


Um leið og við syrgjum meistara Bowie þá fögnum við því að tónlist hans mun lifa og það telst til forréttinda að fá þann heiður að geta boðið landsmönnum að njóta kvöldstundar með okkur í Hörpu föstudaginn 29. apríl nk.
 
Vélavörur ehf á Húsavík er einn aðstandenda tónleikanna Dawid Bowie In  Memorium og verður Guðmundur Vilhjálmsson framkvæmdastjóri Vélavara jafnframt sölustjóri viðburðarins.

Góða skemmtun!
Aðstandendur David Bowie In Memoriam

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744