Marta Florczyk er listamaður Norðurþings 2022

Listamaður Norðurþings árið 2022 er Marta Florczyk listmálari.

Marta Florczyk er listamaður Norðurþings 2022
Almennt - - Lestrar 195

Listamaður Norðurþings árið 2022 er Marta Florczyk listmálari. 

Marta er fædd og uppalin í landi þúsund vatna, Masúríu í Póllandi. Hún hefur  allta tíð verið skapandi  og átti það til sem lítil stelpa að stýra leik- og tónlistarsýningum fyrir fjölskylduna.  Þá tók hún stundum upp á því að klippa og snyrta hunda en eins og sönnum listamanni sæmir var hún alltaf frekar villt.

Árið 2006 flutti hún til Húsavíkur þar sem hún hefur búið síðan ásamt fjölskyldu sinni. Mörtu hefur alltaf fundist hún þurfa að skapa list.  Íslenska náttúran, vindurinn og myrkrið veita henni innblástur að verkunum. Þegar hún málar gleymir hún öllum áhyggjum og finnur leið til að anda og tjá sig frá sínum dýpstu rótum.

Marta er fjölbreytt og sjálfstæð listakona sem leitar enn að sínum sanna stíl. Hún hefur ekki lært málaralist eða tækni í skólum heldur er hún sjálfsmenntuð á því sviði. Hún lauk þó framhaldsnámi við háskóla í Póllandi á sviði menningarstjórnunar sem tengist listinni óbeint. Hún vinnur nú í Borginni frístund og stundar einnig meistaranám í þjóðaröryggi við háskólann í Lódz í Póllandi.

Marta hefur staðið fyrir tveimur listasýningum. Sú fyrri fór fram í Safnahúsinu á Húsavík í ágúst 2020 og bar heitið Incomer. Á þeirri sýningu sýndi listamaðurinn margra ára safn af verkum og naut mikils áhuga gesta sem skynjuðu sýninguna í gegnum prisma  „utanaðkomandi sem horfir á heiminn í kringum sig án þess að skilja hann að fullu.“ 

Á heimasíðu Norðurþings er Mörtu óskað nnilega til hamingju með nafnbótina og þar á bæ hlakka menn  til skapandi samstarfs við hana næsta árið.

Aðsend ljósmynd 

Sigrún Björg fjölmenningarfulltrúi, Marta Florczyk listamaður Norðurþings 2022 og Bergþór Bjarnason staðgengill sveitarstjóra


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744