Mark í uppbótartíma tryggði Völsungum sigur

Mark í uppbótartíma tryggði Völsungum sigur á grönnum sínum í KF sem mættu á PCC völlinn á Húsavík í gærkveldi.

Mark í uppbótartíma tryggði Völsungum sigur
Íþróttir - - Lestrar 193

Áki og Mikel markaskorarar fagna sigurmarkinu.
Áki og Mikel markaskorarar fagna sigurmarkinu.

Mark í uppbótartíma tryggði Völsungum sigur á grönnum sínum í KF sem mættu á PCC völlinn á Húsavík í gærkveldi.

Völsungur var 0-1 undir í hálfleik og KF komst í 0-2 strax í upphafi seinni og skoraði Julio Cesar Fernandes bæði mörkin.


Santiago Feuillassier svaraði um hæl og minnkaði muninn í 1-2 á 50.mín áður en Mikel Abando kom inn á sem varamaður og jafnaði í 2-2 með sinni fyrstu snertingu á 77.mínútu.

Grænir þjörmuðu að í restina og þegar tvö dauðafæri fóru forgörðum á 90.mín leit út fyrir að liðin myndu skipta með sér stigum.
 
Áki Sölvason var ekki sammála og eftir laglegan bolta inn fyrir Jakobi Héðni Róbertssyni kláraði Áki færið af stóiskrí ró þegar klukkan sló 95 mínútur!!!!
 
Alvöru karakter, alvöru comeback! Aldrei gefast upp!! Geggjuð þrjú stig í kvöld og Völsungur á toppnum ásamt Ægi frá Þorlákshöfn með 13 stig.
 
Njarðvík, sem er með 12 stig, á eftir að leika gegn KFA í þessari umferð og með sigri komast þeir á toppinn. 
 
Ljósmynd Hafþór - 640.is

Santiago Feuillassier minnkar hér muninn fyrir Völsung.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744