Margrét Inga og Dagbjört Nótt sigurvegarar Tónkvíslarinnar 2019Almennt - - Lestrar 418
Margrét Inga Sigurðardóttir Framhaldsskólanum á Húsavík vann sigur á Tónkvíslinni 2019 sem fram fór í íþóttahúsinu á Laugum í gærkveldi.
Margrét Inga söng lagið Piece By Piece.
Eyþór Kári Ingólfsson Framhalds-skólanum á Laugum varð í öðru sæti með lagið Natural.
Hubert Henryk Wojtas Framhaldsskólanum á Laugum varð í þriðja sæti með lagið Drinking About You sem hann samdi sjálfur.
Dagbjört Nótt Jónsdóttir úr Öxarfjarðarskóla, vann grunnskólakeppnina. Dagbjört Nótt söng lagið Take Me To Church. Friðrika Bóel Jónsdóttir úr Borgarhólsskóla varð í öðru sæti með lagið Teenage Dirtbag og Klara Hrund Baldursdóttir einnig úr Borgarhólsskóla varð þriðja með lagið Keep On Loving You.