Manni bjargað úr sjónum í Eyvík

Um kl. 19:48 í kvöld barst lögreglunni á Húsavík tilkynning um að maður væri í sjónum í Eyvík, út af Höfðagerðissandi um fimm kílómetrum norðan við

Manni bjargað úr sjónum í Eyvík
Almennt - - Lestrar 950

Jón Kjartansson.
Jón Kjartansson.

Um kl. 19:48 í kvöld barst lögreglunni á Húsavík tilkynning um að maður væri í sjónum í Eyvík, út af Höfðagerðissandi um fimm kílómetrum norðan við Húsavík.

Á fésbókarsíðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra segir að á þeirri stundu var ekki vitað hvernig maðurinn komst þangað né hvers vegna hann var í sjónum en ljóst að skjótrar aðstoðar yrði þörf.

Lögreglumenn fóru á staðinn, ásamt sjúkraliði og björgunarsveitin Garðar, m.a. sjóflokkur sveitarinnar voru kölluð út.

Björgunarbáturinn Jón Kjartansson fór á staðinn, frá Húsavík og 27 mínútum eftir að útkallið barst hafði manninum verið bjargað um borð í Jón Kjartansson, heilum á húfi. Maðurinn hafði verið á fallhlífarbretti og við leik í öldunum utan við Höfðagerðissand /Eyvíkurfjöru en hafði fallið af brettinu og farið úr axlarlið og gat ekki bjargað sér til lands.

Rak manninn því frá landi sökum vinds, en allhvöss suðvestanátt var á staðnum og að verða myrkur en til mannsins sást í ljósum frá landi og vel gekk að leiðbeina áhöfn Jóns Kjartanssonar á staðinn. Maðurinn var fluttur með björgunarbátnum til Húsavíkur og síðan til aðhlynningar á Heilbrigðissstofnun Norðurlands á Húsavík.

Lögreglan á Húsavík vill koma á framfæri kæru þakklæti til viðbragðsaðila fyrir skjót viðbrögð.

Jón Kjartansson

Hér er Jón Kjartansson í öðru verkefni fyrr í dag þegar koma þurfti erlendri skútu að bryggju eftir að hún lenti í vandræðum í höfninni.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744