Manni bjargað úr sjónum í EyvíkAlmennt - - Lestrar 949
Um kl. 19:48 í kvöld barst lögreglunni á Húsavík tilkynning um að maður væri í sjónum í Eyvík, út af Höfðagerðissandi um fimm kílómetrum norðan við Húsavík.
Á fésbókarsíðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra segir að á þeirri stundu var ekki vitað hvernig maðurinn komst þangað né hvers vegna hann var í sjónum en ljóst að skjótrar aðstoðar yrði þörf.
Lögreglumenn fóru á staðinn, ásamt sjúkraliði og björgunarsveitin Garðar, m.a. sjóflokkur sveitarinnar voru kölluð út.
Björgunarbáturinn Jón Kjartansson fór á staðinn, frá Húsavík og 27 mínútum eftir að útkallið barst hafði manninum verið bjargað um borð í Jón Kjartansson, heilum á húfi. Maðurinn hafði verið á fallhlífarbretti og við leik í öldunum utan við Höfðagerðissand /Eyvíkurfjöru en hafði fallið af brettinu og farið úr axlarlið og gat ekki bjargað sér til lands.
Rak manninn því frá landi sökum vinds, en allhvöss suðvestanátt var á staðnum og að verða myrkur en til mannsins sást í ljósum frá landi og vel gekk að leiðbeina áhöfn Jóns Kjartanssonar á staðinn. Maðurinn var fluttur með björgunarbátnum til Húsavíkur og síðan til aðhlynningar á Heilbrigðissstofnun Norðurlands á Húsavík.
Lögreglan á Húsavík vill koma á framfæri kæru þakklæti til viðbragðsaðila fyrir skjót viðbrögð.
Hér er Jón Kjartansson í öðru verkefni fyrr í dag þegar koma þurfti erlendri skútu að bryggju eftir að hún lenti í vandræðum í höfninni.






























































640.is á Facebook