Mærudagarnir verða 24-27 júlí

Mærudagar verða haldnir 24.-27. júlí næstkomandi og mun Húsavíkurstofa halda utan um framkvæmd og skipulag hátíðarinnar líkt og undanfarin ár.

Mærudagarnir verða 24-27 júlí
Fréttatilkynning - - Lestrar 826

Mærudagarnir verða 24-27 júlí.
Mærudagarnir verða 24-27 júlí.

Mærudagar verða haldnir 24.-27. júlí næstkomandi og mun Húsavíkurstofa halda utan um framkvæmd og skipulag hátíðarinnar líkt og undanfarin ár.

Verkefnastjórar hátíðarinnar eru Berglind Kristjánsdóttir og Einar Gíslason. Stefnt er að því að hátíðin verði með svipuðu sniði og undanfarin ár með áherslu á fjölskylduvæna viðburði og afþreyingu.

Næstu vikur verðum við í sambandi við þá aðila sem hafa verið með viðburði á hátíðinni til þessa og óskum jafnframt eftir fleiri hugmyndum eða viðburðum sem gera hátíðina okkar skemmtilegri.

Fyrirhugað er að halda íbúafund um Mærudaga í lok júní þar sem framkvæmd og skipulag verður kynnt.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Húsavíkurstofu í síma 464-4300 og á tölvupósti á info@visithusavik.is „


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744