Mærudagar fara fram á sama tíma

Fjölskylduráð Norðurþings hafði til umfjöllunar á fundi sínum í gær íbúafund um Mærudaga og framtíð þeirra sem fór fram þann 28. febrúar.

Mærudagar fara fram á sama tíma
Almennt - - Lestrar 222

Fjölskylduráð Norðurþings hafði til umfjöllunar á fundi sínum í gær íbúafund um Mærudaga og framtíð þeirra sem fór fram þann 28. febrúar.

Fjölskylduráð ákvað að fela íþrótta- og tómstundafulltrúa að semja við Fjölumboð ehf., sem hefur séð um framkvæmd hátíðarinnar undanfarin ár, um að skipuleggja Mærudaga 2023. 

"Í ljósi niðurstaðna íbúakönnunar, íbúafundar og samráðs við hagaðila verða Mærudagar haldnir á sama tíma og verið hefur. Dagarnir verða með svipuðu sniði og lögð verður meiri áhersla á þátttöku heimafólks. Vilji er til þess að hátíðin færist nær uppruna sínum með tímanum. 

Fjölskylduráð vísar málinu til afgreiðslu í stjórn hafnasjóðs með tilliti til rafmagns á hafnarsvæðinu vegna sviðs, tívólís og veitingasölu og fráveitumála vegna salernisaðstöðu. Ráðið óskar eftir því að stjórn hafnasjóðs tryggi að innviðir verði til staðar vegna hátíðahaldanna". Segir í fundargerð fjölskylduráðs.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744