Lyngbrekkusystkinin sigruðu Opna Húsavíkurmótið í boccia

Opna Húsavíkurmótið í Boccia fór fram í íþróttahöllinni í gær og var að venju um glæsilegt mót að ræða.

Lyngbrekkusystkinin með verðlaunabikarinn.
Lyngbrekkusystkinin með verðlaunabikarinn.

Opna Húsavíkurmótið í Boccia fór fram í íþróttahöllinni í gær og var að venju um glæsilegt mót að ræða.

Opna Húsavíkurmótið er löngu orðinn er fastur liður í starfi Boccideildar Völsungs með góðum stuðningi Kiwanis-klúbbsins Skjálfanda, sem annast alla dómgæslu, merkingu valla, og kemur að öllum undirbúningi mótsins.

Mótinu stýrðu Anna María Þórðardóttir og Kristín Magnúsdóttir úr stjórn Bocciadeildar, en Arnar Braga annaðist alla tölvuvinnslu við mótsstjórn.

Mótið tókst í alla staði afar vel, góð þátttaka var en alls mættu til leiks 35 sveitir sem sýnir enn einu sinni að bæjarbúar og fyrirtæki eru tilbúin að styðja við bakið á Bocciadeildinni með þátttöku, en þetta er fjáröflun fyrir deildina í formi firmakeppni.

Þá var þetta í annað sinn keppt í krakkaflokki fatlaðra og tókst það með ágætum en krakkaboccia hófst hjá deildinni í upphafi árs 2014.

Boccia 2015

Krakkarnir fengu verðlaunapeninga frá Kiwanisklúbbnum. Fv. Ásrún Vala Kristjánsdóttir, Katla María Guðnadóttir, Sigþór Orri Arnarson og Sindri Gauksson. Ljósmynd Gaukur Hjartarson.

Leikið til úrslita

Hér er leikið til úrslita, Sveinbjörn Magg einbeittur á svip og miðað við svipinn á öðrum keppendum hefði mátt heyra saumnál detta i höllinni. Þvílík var spennan. Lj. Gunnar Jóhannesson.

Leikið um þriðja sætið

Öræfabróðirinn Ásmundur horfir á eftir boltanum í leiknum um þriðja sætið. Lj. Gunnar Jóhannesson.

Úrslit:

Lyngbrekkusystkinin

1. sæti. Lyngbrekkusystkinin, Lena Kristín og Jón Aðalsteinn Hermannsbörn. Verðlaun, blandari frá Víkurraf og gjafabréf frá Skóbúð Húsavíkur. Húsavíkurmeistararnir hlutu einnig að launum glæsilegan farandbikar sem gefin var af Norðlenska ehf og var nú keppt um í fjórða sinn.

Ráðleysa

 2. sæti. Ráðleysa, D-sveit heldriborgara,  Sveinbjörn og Guðmundur Magnússynir. Verðlaun frá Bókaverslun Þórarins, kíkir ofl., og gjafabréf frá versluninni Tákn.

Arsenal

3. sæti. „Arsenal“, A-sveit frá Norðlenska, Rúnar Þór og Ágúst Þór Brynjarssynir. Verðlaun frá Töff - Föt og Hárform  

Einnig var spiluð úrslit um 4-6 sætið:

Öræfabræður 

4. sæti. Öræfabræður,  Sveit úr Bárðardal, Ásgrímur og Kristján frá Lækjavöllum. Verðlaun, gjafabréf  frá veitingahúsinu Hvalbak.

Húsasmiðjan 

5. sæti. Sveit-C frá Húsasmiðjunni, Hafsteinn, Snorri og Toggi. Verðlaun frá Innnex, konfekt. (Vantar Togga á myndina)

Lönguvitleysingjarnir

6. sæti. Sveit Heldriborgara, Lönguvitleysingarnir, Ína Rúna og Lilja Skarphéðinsdætur. Verðlaun snyrtivörur frá Lyfju .

Heiðusrmenn

Þá voru veitt sérstök verðlaun því liði sem voru “í flottasta búningunum”, verðlaun gjafabréf frá Sölku-veitingum, fyrir valinu varð sveit frá Norðurþingi, Heiðursmenn, Kristbjörn Óskarsson og Guðbjartur E Jónsson.    

Verðlaun öll voru glæsileg, og sýnir hug fyrirtækja til Bocciadeildarinnar og Kiwanis, og er þeim þakkað fyrir frábæran stuðning.

Mótið var afar skemmtilegt og tókst í alla staði mjög vel, mikil stemming, og spenna.

Glæsilegt mót með um 75 keppendur og gestir í íþróttahöllinni þegar mest var nokkuð á annað hundraðið, frábær og skemmtilegur dagur. Takk fyrir húsvíkingar og aðrir gestir, sjáumst hress að ári á næsta „Opna Húsavíkurmóti í Boccia“

15/2.2015/EO

Með því að smella á myndirnar með fréttinni er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744