22. apr
Lokun Naustagils vegna framkvæmda við fráveituFréttatilkynning - - Lestrar 389
Vegna framkvæmda við fráveitu á Hafnarstétt mun verktaki loka Naustagili á morgun, miðvikudaginn 23. apríl.
Hjáleið verður við Eimskip á meðan lokunin stendur yfir, auk þess sem Árgil verður opið fyrir umferð niður á höfn.
Við þökkum fyrir þolinmæðina á meðan á þessum framkvæmdum stendur.