Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í dag

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í dag í Safnahúsinu á Húsavík.

F.v. Inga Björg, Viðja Karen og Sæþór Orri.
F.v. Inga Björg, Viðja Karen og Sæþór Orri.

Lokahátíð Stóru upplestrar-keppninnar fór fram í dag í Safnahúsinu á Húsavík.

Tólf sjöundubekkingar skólans komu saman og fluttu mál sitt fyrir gesti.

Frá þessu greinir á heimasíðu skólans

"Stóra upplestrarkeppnin fyrir 7. bekk hófst veturinn 1996 - 1997 með þátttöku 223 barna í Hafnarfirði og á Álftanesi. Sex árum síðar voru börnin 4579 úr 151 skóla hringinn í kringum landið. Upplestrarkeppnin er ekki "keppni" í neinum venjulegum skilningi heldur þróunarverkefni. Höfuðáherslan er lögð á bekkjarstarfið og að allir nemendur njóti góðs af.

Í fyrri umferð voru lesnar Svipmyndir úr skáldsögunni Þín eigin þjóðsaga eftir Ævar Þór Benediktsson. En í seinni umferð höfðu lesarar val um hvaða ljóð þeir vildu flytja. Það vakti athygli og gleði að áheyrendur fengu að hlýða á ljóðalestur á pólsku.

Í fyrsta sæti var Viðja Karen Vignisdóttir, í öðru sæti var Inga Björg Brynjúlfsdóttir og þriðja sæti skipaði Sæþór Orri Skarphéðinsson.

Sparisjóður Suður-Þingeyinga er helsti styrktaraðili keppninnar og þökkum við þeim kærlega fyrir samstarfið. Sömuleiðis Safnahúsinu á Húsavík. Öll sem lásu fengu bókagjöf og viðurkenningarskjal. Fyrir verðlaunasæti hlutu nemendur peningagjöf.

Það eru sterk tengsl milli orðaforða og lesskilnings. Ein árangursríkasta leiðin til að efla orðaforða barna, og þar með málskilning, er aukinn bóklestur. Að tala við börnin okkar og lesa fyrir börnin okkar. Það er skammgóður vermir að nýta sér rafrænt afþreyingarefni til að skapa ró eða til að kveikja áhuga sem fer oft og gjarnan fram á ensku. Íslenskan er undirstaðan, saga okkar og menning, hið talaða mál með öllum sínum fögru hljóðum, sérkennum og framburði".

Aðsend mynd


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744