Lögreglan óskar eftir vitnum að líkamsárásum

Lögreglan á Húsavík óskar eftir vitnum að líkamsárásum sem áttu sér stað á Gamla Bauk, á dansleikmeð hljómsveitinni Von þann 20.09 sl.   Þar var veist

Lögreglan á Húsavík óskar eftir vitnum að líkamsárásum sem áttu sér stað á Gamla Bauk, á dansleikmeð hljómsveitinni Von þann 20.09 sl.

 

Þar var veist að ungum manni inni á Skipasmíðastöðinni, hann sleginn og í hann sparkað þannig að tennur brotnuðu auk annarra áverka. Lögregla veit að fjöldi fólks var á staðnum og ómögulegt annað en að einhver hafi séð hvað fram fór.

 

 

Ennfremur var veist að stúlku utan við staðinn, á pallinum milli húsanna og hún slegin í andlitið.  Þar var einnig nokkur fjöldi fólks.

 

Lögregla biður þá sem til sáu að gefa sig fram og  tekur við upplýsingum í síma 4641303.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744