LNS Saga fær lóðir undir vinnubúðir

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings samþykkti á dögunum að LNS Saga fengi úthlutað lóðunum við Höfða 14, 16 og 18 undir svefnbúðir og mötuneyti.

LNS Saga fær lóðir undir vinnubúðir
Almennt - - Lestrar 781

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings samþykkti á dögunum að LNS Saga fengi úthlutað lóðunum við Höfða 14, 16 og 18 undir svefnbúðir og mötuneyti. 

Þar er áætlað að settar verði upp svefnbúðir fyrir 44 starfsmenn og munu þær standa til ársloka 2017.

Að auki áætlar fyrirtækið setja upp vinnuaðstöðu á hafnarsvæðinu í grennd við fyrirhugaðan gangamunna og einnig á lóðunum Höfða 6-8.

Höfðinn

Í gær var flutningaskip við Norðurgarðinn þar sem skipað var upp vinnubúðum og þær fluttar á höfðann. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.


Af öðrum innviðaframkvæmdum er það helst að stefnt  er að því dýpkunarframkvæmdir hefjist í Húsavíkurhöfn á allra næstu dögum. Þá hefur Vegagerðin boðið út niðurrekstur á stálþilum vegna lengingar Bökugarðs og verða tilboð opnuð 8. desember nk.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744