Landssöfnun Krabbameinsfélagsins á morgun

Mottu-mars er yfirskrift mánaðarlangs átaks Krabbameinsfélags Íslands um karlmenn og krabbamein sem hófst formlega 1. mars. Á morgun, laugardaginn 6. mars

Landssöfnun Krabbameinsfélagsins á morgun
Almennt - - Lestrar 361

Mottu-Gunni er í Sofíu.
Mottu-Gunni er í Sofíu.

Mottu-mars er yfirskrift mánaðarlangs átaks Krabbameinsfélags Íslands um karlmenn og krabbamein sem hófst formlega 1. mars. Á morgun, laugardaginn 6. mars er landssöfnun þar sem selt verður sérstakt barmerki, Mottupinnann svokallaða.

Á Húsavík ætla meðlimir karlaklúbbsins Sófíu að aðstoða Krabbameinsfélagið við að selja Mottu-pinnan sem  verður seldur í Kaskó og Úrval og einnig fyrir utan kjörstað í Borgarhólsskóla.

 

640.is vill hvetja alla til þess að styrkja þetta góða málefni með því að festa kaup á Mottupinnanum og bendir jafnframt á karlmennogkrabbamein.is 

Þar er m.a. hægt að fylgjast með keppni í Mottu-marsinu auk þess að fræðast um karlmenn og krabbamein en árlega greinast 716 karlmenn með krabbamein.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744