Kvikmyndasýning í Safnahúsinu

Á morgun sunnudag kl. 13 býður Kvikmyndasafn Íslands til kvikmyndasýninga í Safnahúsinu á Húsavík og er aðgangur ókeypis. Þar verða sýnd myndbrot frá

Kvikmyndasýning í Safnahúsinu
Aðsent efni - - Lestrar 63

Á morgun sunnudag kl. 13 býður Kvikmyndasafn Íslands til kvikmyndasýninga í Safnahúsinu á Húsavík og er aðgangur ókeypis. Þar verða sýnd myndbrot frá helstu konungskomum til Íslands á árunum 1907 – 1930 en Kvikmyndasafn Íslands hefur staðið fyrir endurgerð á þessum myndum

 

  Myndirnar eru Konungskoman 1921 eftir þá Magnús Ólafsson og Peter Petersen (Bíópetersen). Konungskoman 1921 eftir Pétur Brynjólfsson ljósmyndara. Frá konungskomunni 1926 koma hér m.a. fram myndir frá Akureyri eftir Hallgrím Einarsson ljósmyndara, sem ekki hafa verið sýndar opinberlega fyrr. Frá árinu 1926 eru sýndir hlutar mynda þeirra Hallgríms Einarssonar og Lofts Guðmundssonar.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744