06. nóv
			Kvartað vegna ástands göngustígsin í VillasneiðingnumAlmennt -  - Lestrar 578
			
		Fyrir fundi skipulags- og framkvæmdaráði Norðurþings í gær lá fyrir kvörtun vegna ástands göngustígsins í Villasneiðingnum milli Héðinsbrautar og Höfðavegar.
"Steinar eru lausir á gönguleiðinni og geta valdið hættu á að börn/fólk hrasi og slasi sig.
Mikil umferð gangandi fólks er um "Sneiðinginn" bæði af Höfðavegi-num og Brekkunum. 
Fólk hefur verið að setja steina uppá körin sem eru líka hlaðin og þeim hefur ekki verið viðhaldið" segir í kvörtuninni.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkaði erindið og fól framkvæmda- og þjónustufulltrúa að kanna aðstæður og sjá til þess að öryggi á gangstígnum sé tryggt.
































									
































 640.is á Facebook