Kristján Þór sækist ekki eftir starfi sveitarstjóra á ný

„Nú mun nýr kafli taka við, þar sem ég hef ákveðið að sækj­ast hvorki eft­ir því að gegna starfi sveit­ar­stjóra að aflokn­um

Kristján Þór Magnússon.
Kristján Þór Magnússon.

„Nú mun nýr kafli taka við, þar sem ég hef ákveðið að sækj­ast hvorki eft­ir því að gegna starfi sveit­ar­stjóra að aflokn­um sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um í vor, né bjóða mig fram til setu í sveit­ar­stjórn,“ skrif­ar Kristján Þór Magnús­son, sveit­ar­stjóri Norðurþings, í færslu á Face­book.

„Þrátt fyr­ir allt, og sem hvatn­ing til allra þeirra sem vilja hafa áhrif á ákv­arðana­töku í sínu sveit­ar­fé­lagi vil ég segja þetta; Með þátt­töku í staðbundn­um stjórn­mál­um get­ur fal­ist dýr­mæt gjöf til per­sónu­legs þroska og ómet­an­legr­ar reynslu,“ skrif­ar Kristján.

Kristján seg­ist bæði þakk­lát­ur og stolt­ur að hafa notið trausts til að vera í for­svari fyr­ir sveit­ar­fé­lagið und­an­geng­in átta ár og að hann eigi erfitt með að ímynda sér að fjöl­breytt­ara starf finn­ist en starf sveit­ar­stjóra. „Árin átta hafa liðið á ógn­ar­hraða og magnaðir upp­bygg­ing­ar­tím­ar sveit­ar­fé­lags­ins Norðurþings verið í senn gef­andi og krefj­andi,“ skrif­ar Kristján.

Kristján seg­ir spenn­andi tíma framund­an en í maí kjósa íbú­ar full­trúa til að fara með stjórn sveit­ar­fé­lag­anna. „Sveit­ar­stjórn­ar­vett­vang­inn þarf áfram að efla og tryggja að fleira fólk sæk­ist eft­ir þátt­töku í stjórn­mál­um. Þótt ýms­um já­kvæðum breyt­ing­um hafi verið komið á víða m.t.t. kjara og starfsaðstæðna kjör­inna full­trúa þarf meira til. Það er ekki svo að óvæg­in umræða, út­hróp­an­ir og per­són­uníð á op­in­ber­um vett­vangi í garð sveit­ar­stjórn­ar­fólks auki áhuga eða út­hald fólks í stjórn­mál­um. Slíkt hljót­um við að geta sam­mælst um að frá­biðja okk­ur,“ skrif­ar hann.

„Ég mun ganga sátt­ur og stolt­ur frá borði að kosn­ing­um lokn­um og vænti þess að ný sveit­ar­stjórn haldi áfram á braut upp­bygg­ing­ar og sókn­ar. Í Norðurþingi eru all­ar for­send­ur til að horfa björt­um aug­um til framtíðar, á grunni öfl­ugr­ar viðspyrnu sem náðst hef­ur í rekstri sveit­ar­fé­lags­ins á und­an­förn­um árum,“ skrif­ar Kristján. (mbl.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744