Kallarnir byrjaðir að leggja grásleppunetin

Kallarnir eru byrjaðir að leggja grásleppunetin en vertíðin mátti hefjast þann 20. þessa mánaðar.

Kallarnir byrjaðir að leggja grásleppunetin
Almennt - - Lestrar 400

Grásleppuvertíðin er að hefjast.
Grásleppuvertíðin er að hefjast.

Kallarnir eru byrjaðir að leggja grásleppunetin en vertíðin mátti hefjast þann 20. þessa mánaðar.

Aron og Von eru einu bátarnir sem eru byrjaðir og einhverjir í startholunum.

Sigurður Kristjánsson á Voninni taldi að 10-12 bátar myndu stunda grásleppuveiðar frá Húsavík á þessari vertíð. 

Sigurður sagði báta frá höfnum við Eyjafjörð hafi lagt netin um helgina og byrjaðir að vitja um. Lítið hafi verið um grásleppu en allmikill þorskur í netunum hjá þeim.

Á heimasíðu Landsambands smábátaeigenda segir að meiri óvissa sé með horfur á komandi vertíð en verið hefur mörg undanfarin ár. Lesa meira….

Sigurður Kristjánsson

Það var vor í lofti við höfnina í dag. Hér er Siggi Gutta að græja færin um borð í Voninni en hann reiknaði með að vitja um grásleppunetin á fimmtudaginn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744