Kallarnir byrjaðir að leggja grásleppunetinAlmennt - - Lestrar 400
Kallarnir eru byrjaðir að leggja grásleppunetin en vertíðin mátti hefjast þann 20. þessa mánaðar.
Aron og Von eru einu bátarnir sem eru byrjaðir og einhverjir í startholunum.
Sigurður Kristjánsson á Voninni taldi að 10-12 bátar myndu stunda grásleppuveiðar frá Húsavík á þessari vertíð.
Sigurður sagði báta frá höfnum við Eyjafjörð hafi lagt netin um helgina og byrjaðir að vitja um. Lítið hafi verið um grásleppu en allmikill þorskur í netunum hjá þeim.
Á heimasíðu Landsambands smábátaeigenda segir að meiri óvissa sé með horfur á komandi vertíð en verið hefur mörg undanfarin ár. Lesa meira….
Það var vor í lofti við höfnina í dag. Hér er Siggi Gutta að græja færin um borð í Voninni en hann reiknaði með að vitja um grásleppunetin á fimmtudaginn.