05. apr
Jóna, Lena og Lindi ÍslandsmeistararÍþróttir - - Lestrar 535
Um 400 íþróttamenn frá tæplega 30 félögum tóku þátt í Íslandsmóti ÍF um síðustu helgi. Mótið fór fram í Laugardalshöllinni og keppt var í boccia, frjálsum íþróttum, sundi , bogfimi svo eitthvað sé nefnt.
Að sögn Önnu Maríu Þórðardóttur þjálfara Bocciadeildar Völsungs fóru þrjú lið til leiks í boccia, eitt í fyrstu deild og tvö í þriðju deild. Árangur liðanna var með ágætum en upp úr stóð þó Íslandsmeistaratitill í þriðju deild.
Þar sigruðu nokkuð örugglega Jóna Rún Skarphéðinsdóttir, Lena Kristín Hermannsdóttir og Vilberg Lindi Sigmundson en þau unnu alla sína leiki á mótinu.