Jóhann Kristinn hættir með Völsung

Jóhann Kristinn Gunnarsson hefur tilkynnt að hann sé hættur þjálfun karlaliðs Völsungs í knattspyrnu.

Jóhann Kristinn hættir með Völsung
Íþróttir - - Lestrar 294

Jóhann Kr. Gunnarsson.
Jóhann Kr. Gunnarsson.

Jóhann Kristinn Gunnarsson hefur tilkynnt að hann sé hættur þjálfun karlaliðs Völsungs í knattspyrnu. 

Jói hefur þjálfað liðið, sem var hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í Lengjudeildinni í ár, undanfarin fimm ár og áður í þrjú ár.

"Nafn Jóa er sannarlega greipað sögu Völsungs en hann hefur verið við stjórnvölinn í um 20% deildar- og bikarleikja karlaliða Völsungs í sögu félagsins.
 
Hann hefur unnið ötult starf fyrir félagið og í honum er gríðarlega mikil eftirsjá. Við þökkum Jóa kærlega fyrir samstarfið og hans gríðarstóra Völsungshjarta" segir í færslu knattspyrnuráðs á Fésbókarsíðu Græna hersins.
 
Þar segir jafnframt að knattspyrnuráð hafi þegar hafið leit sína að eftirmanni Jóa og muni vonandi geta flutt fregnir af því fyrr en síðar. Eins er unnið að framlengingu leikmannasamninga.
 
Ljósmynd Hafþór - 640.is
 
Jói á hliðarlínunni í sumar.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744