Jakob Sævar sigraði Janúarmót Goðans

Jakob Sævar Sigurðsson vann sigur á Janúarmóti Goðans sem lauk í dag á Húsavík.

Jakob Sævar sigraði Janúarmót Goðans
Íþróttir - - Lestrar 200

Adrian, Jakob Sævar og Smári.
Adrian, Jakob Sævar og Smári.

Jakob Sævar Sigurðsson vann sigur á Janúarmóti Goðans sem lauk í dag á Húsavík. 

Jakob Sævar fékk 4 vinninga af 5 mögulegum og hafði naumlega betur á oddastigum en Smári Sigurðsson sem einnig fékk 4 vinninga.

Þetta var þriðji titillinn sem Jakob vinnur á tæpu ári. Hann varð skákmeistari Goðans í febrúar og hraðskákmeistari Goðans í desember.

Nýliðinn Adrian Benedicto varð í 3. sæti með 3,5 vinninga eftir feikilega góða frammistöðu á mótinu. Roman Juhas og Hilmar Freyr Birgisson voru einnig að tefla á sínu fyrsta kappskákmóti og geta verið sáttir með árangurinn.

Lokastaðan.
Rk. SNo   Name FED Rtg Pts.  TB1  TB2  TB3
1 2   Sigurdsson Jakob Saevar ISL 1796 4,0 0,5 3 13,5
2 1   Sigurdsson Smari ISL 1827 4,0 0,5 3 11,0
3 8   Villanueva Adrian Benedicto ISL 0 3,5 0,0 3 10,5
4 3   Adalsteinsson Hermann ISL 1564 2,5 0,0 2 15,0
5 7   Juhas Roman ISL 0 2,0 0,0 2 13,0
6 4   Akason Aevar ISL 1460 1,5 1,0 1 12,0
7 6   Birgisson Hilmar Freyr ISL 0 1,5 0,0 1 12,5
8 5   Asmundsson Sigurbjorn ISL 1337 1,0 0,0 1 12,5

 

Janúarmótið var síðast haldið sem sérstakt mót árið 2017. Þá vann Sigurður Daníelsson. Janúarmótið var haldið sem lítið innanfélagsmót í stað Framsýnarmóts/BRIM sem margbúið er að fresta.

Tímamörkin í mótinu voru 60 mín + 30sek/leik sem gerði það kleift að halda mótið á tveim dögum. Þrjár umferðir voru tefldar fyrri daginn og tvær seinni daginn. (godinn.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744