Jakob Héðinn æfir með U16

Hinn ungi og efnilegi knattspyrnumaður úr Völsungi, Jakob Héðinn Róbertsson, æfir þessa dagana með landsliðshópi leikmanna 16 ára og yngri í Hafnarfirði.

Jakob Héðinn æfir með U16
Íþróttir - - Lestrar 182

Jakob Héðinn Róbertsson.
Jakob Héðinn Róbertsson.

Hinn ungi og efnilegi Völsungur, Jakob Héðinn Róbertsson æfir þessa dagana með landsliðshópi leikmanna 16 ára og yngri í Hafnarfirði. 

Æfingarnar sem Jörundur Áki Sveinsson landsliðsþjálfari U17 stýrir ásamt fleirum standa yfir frá mánudegi til miðvikudags.
 
Jakob er þarna við æfingar í sterkum hópi leikmanna af öllu landinu og á fésbókarsíðu Græna hersins segir:
 
Við vitum að hann á eftir að vekja verðskuldaða athygli og óskum kappanum góðs gengis á æfingunum.

Og til hamingju með valið!

Áfram Völsungur!

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744