Jafntefli í grannaslagnum

Sæþór Ol­geirs­son skoraði bæði mörk Völsungs í kvöld þegar liðið fékk Magna í heim­sókn á Voda­fo­nevöll­inn á Húsa­vík

Jafntefli í grannaslagnum
Íþróttir - - Lestrar 185

Ásgeir og Sæþór fagna marki í kvöld.
Ásgeir og Sæþór fagna marki í kvöld.

Sæþór Ol­geirs­son skoraði bæði mörk Völsungs í kvöld þegar liðið fékk Magna í heim­sókn á Voda­fo­nevöll­inn á Húsa­vík 

Um sannkallaðan ná­granna­slag var að ræða í 2. deildinni og hvergi gefið.

Jeffrey Monakana kom gestunum yfir á 17 mín. en Sæþór jafnaði fyrir Völsunga skömmu fyrir leikhlé.

Sæþór var aftur á ferðinni á þegar um 15 mín. voru til leiksloka en Magnamenn jöfnuðu leikinn í uppbótartíma með marki Jóns Óskars Sigurðssonar.

Jafntefli 2-2 staðreynd og Völsung­ur eru með 11 stig í átt­unda sæt­inu en Magni með 10 í því ní­unda.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744