Íţróttamađur Húsavíkur

Eins og kom fram á 640.is í gćr var Kristbjörn Óskarsson valinn íţróttamađur Húsavíkur fyrir áriđ 2014 um helgina.

Íţróttamađur Húsavíkur
Íţróttir - - Lestrar 604

Verđlaunahafar og eđa fulltrúar ţeirra.
Verđlaunahafar og eđa fulltrúar ţeirra.

Eins og kom fram á 640.is í gćr var Kristbjörn Óskarsson valinn íţróttamađur Húsavíkur fyrir áriđ 2014 um helgina.

Kristbjörn er vel ađ titlinum kominn en síđastliđiđ haust stóđ hann uppi sem Íslandsmeistari í 1. deild í einstaklingskeppni á Seyđisfirđi.

Í öđru sćti var golfarinn Axel Reynisson en jöfn í ţriđja til fjórđa sćti voru gönguskíđakappinn Fannar Ingi Sigmarsson og Thelma Dögg Tómasdóttir hestaíţróttamađur.

Auk bikara hlutu íţróttamennirnir myndarlega ferđastyrki frá Kiwanis-klúbbnum Skjálfanda sem ađ venju stóđ ađ kjörinu á Íţróttamanni Húsavíkur.

Svanhildur og Thelma Dögg

Mćđgurnar Svanhildur Jónsdóttir og Thelma Dögg Tómasdóttir voru kjörnar hestaíţróttamenn ársins og nokkuđ ljóst ađ hestamennskan er sannkallađ fjölskyldusport.

Egill Olgeirsson fulltrúi Kiwanisklúbbsins lýsti kjörinu og eftirfarandi kom fram ţegar hann ávarpađi íţróttafólkiđ og gesti í Íţróttahöllinni á sunnudaginn og lýsti kjöri íţróttamans Húsavíkur fyrir áriđ 2014:

 „Ţetta er nú í 19. sinn sem viđ Kiwanismenn heiđrum afreksfólk í íţróttum og veitum ţeim viđurkenningar međ ţessum hćtti. Ţađ er nefnd innan Skjálfanda sem vinnur ađ ţessu í samrćmi viđ reglugerđ um “Íţróttamann Húsavíkur”. 

Regla og hefđ er um hvernig stig eru gefin og er ţar tekiđ miđ af ástundun, framförum og árangri í keppni innan félags, á hérađsvettvangi, á landsmótum, val í landsliđ og ţáttöku í keppni fyrir Íslands hönd á mótum erlendis.

Ađ venju hefur nefndin leitađ upplýsinga sem víđast um árangur liđins árs hjá húsvísku íţróttafólki, og alltaf hefur niđurstađ nefndarinnar veriđ samhljóđa hvađ varđar mat á áhersluţáttum og um endanlega niđurstöđu um valiđ. Í ár miđađ viđ ađstćđur held ég jafnvel ađ ţáttur ástundunar og félagslegrar ţátttöku hafi haft meira vćgi en oft áđur.

Ađ ţessu sinni sendum viđ erindi til forsvarsmanna 15 íţróttagreina og óskuđum eftir tilnefningum í 30 flokka. Svör bárust frá öllum, en 2 deildir í Völsungi,  Siglingadeild  og Motorcrossdeild  ákváđu ađ tilnefna ekki ađ ţessu sinni og rökstuddu ţađ í svari sínu, og sumar deildir/félög tilnefndu ađeins í öđrum aldurs flokknum.

Í dag munum viđ heiđra 18 íţróttamenn fyrir afrek sín og ástundun í 13 íţróttagreinum, auk ţess verđur afhendur eins og áđur  “Hvatningabikar ÍF”  og ađ lokum tilkynnt um val á sćmdarheitinu “Íţróttamađur Húsavíkur 2014”  úr hópi ţessara íţróttamanna.

Ţessi ađferđ sem nú hefur veriđ vihöfđ til fjölda ára hefur gefiđ okkur ţó nokkra innsýn í starf íţrótta á svćđinu og ţróun sem átt hefur sér stađ á ţessum árum. Sumar íţróttagreinar dafna og eflast, nýjar koma til,  međan ađrar dragast saman eđa jafnvel lognast út af.  Spurning er um ástćđur,  er ţađ ríkjandi tískusveiflur eđa hefur ađstöđusköpun í sveitarfélaginu ţar afgerandi áhrif ? 

Ađferđafrćđin hefur veriđ rćdd innan nefdarinnar og hefur stjórn Skjálfanda nú ákveđiđ ađ óska eftir viđrćđum viđ forsvarsmenn íţróttafélaganna og sveitarfélagsins um endurskođun á ţessu fyrirkomulagi, rćđa um framhaldiđ og hvort áhugi sé á breytingum ?  

Ţetta hefur veriđ all sćmilegt íţróttaár, áriđ 2014 á Húsavík.

Á árinu unnust ţó nokkrir sigrar, einum Íslandsmeistartittli var landađ,  en eins og gengur hafa einhverjir orđiđ fyrir vonbrigđum og markmiđ ekki náđst. Ađstađa til íţróttaiđkana hefur eitthvađ veriđ bćtt, en meira ţarf ef duga skal. 

Mikilvćgt er ađ forgangsröđun og áćtlun um uppbyggingu íţróttamannvirkja sjái dagsins ljós og  áfram verđi unniđ af metnađi  ađ uppbyggingu íţróttamannvirkja húsvísku mannlífi til heilla. 

Húsvísk íţróttaćska hefur á liđnu áratugum fariđ víđa viđ góđan orđstír og boriđ uppeldis stađ sínum Húsavík gott vitni um gott og öflugt mannlíf,  engu ađ síđur er mikilvćgt ađ geta haldiđ sem allra lengst í unga fólkiđ okkur hér heima og einn af mikilvćgustu ţáttum í ţeirri viđleitni er ađ geta bođiđ ungu fólki upp á kraftmikiđ og fjölbreytt íţróttastarf".

Hér ađ neđan er umsögn um Kristbjörn Óskarsson Íţróttamann Húsavíkur 2014:

Kristbjörn er marg reyndur bocciamađur  sem  hefur til fjölda ára eđa allt frá stofnun Boccia-deildarinnar veriđ í hópi okkar bestu Bocciamanna. Keppt á öllum Íslandsmótum og öđrum stórmótum, bćđi í einstaklings og liđakeppni, en hann er í  1. deild bćđi  í einstaklings og liđa flokki.

Áđur hefur Kristbjörn veriđ valinn í landsliđ Íslands í Boccia til ađ keppa fyrir Íslands hönd á Norđurlandamóti sem haldiđ var í Reykjavík  og var  árangur hans góđur ţó ekki nćđi hann ađ komast ţar á verđlaunapall.

Áriđ 2014 var mjög gott bocciaár hjá honum, komst í úrslit á flest öllum stórmótum ársins og öđrum mótum sem hann tók ţátt í, og toppađi svo áriđ á Íslandsmótinu í einstaklingskeppni á Seyđisfirđi s.l. haust međ ţví ađ standa uppi sem Íslandsmeistari 1. deildar einstaklingskeppni.  Glćsilegur árangur

Kristbjörn er íţróttamađur sem ćtíđ hefur lagt mikla rćkt og dugnađ í íţrótt sína, og međ elju og samviskusemi náđ ţeim árangri til fjölda ára ađ halda sig í hópi međal allar bestu bocciamanna Íslands.

Sannur íţróttamađur ţarna á ferđ og ađ venju glćsilegt boccia ár ađ baki hjá Kristbirni  og er hann ţví vel ađ titlinum kominn og fötluđu íţróttafólki mikil hvatning og félagi sínu Völsungi til mikils sóma.

Kiddi og Bendi

Benedikt Kristjánsson forseti Kiwanisklúbbsins Skjálfanda afhenti sínum gamla nágranna af Höfđaveginum verđlaun ţau sem fylgja titlinum Íţróttamađur Húsavíkur.

Ţeir sem hlutu tilnefningar í kjöri Íţróttamanns Húsavíkur fyrir áriđ 2014 .

Handknattleikur 16 ára og yngri: Gunnar Már Vilhjálmsson.

Knattspyrna 16 ára og yngri: Sćţór Olgeirsson.

Knattspyrna 17 ára og eldri: Berglind Kristjánsdóttir.

Frjálsíţróttir 16 ára og yngri: Arna Dröfn Sigurđardóttir.

Frjálsíţróttir 17 ára og eldri: Dagbjört Ingvarsdóttir.

Skíđi - alpagreinar 16 ára og yngri: Fannar Reykjalín Ţorláksson.

Skíđi - ganga 16  ára og yngri: Fannar Ingi Sigmarsson.

Sund 16 ára og yngri: Sif Heiđarsdóttir.

Fimleikar 16 ára og yngri: Arna Védís Bjarnadóttir.

Boccia 16 ára og yngri: Hildur Sigurgeirsdóttir.

Boccia 17 ára og eldri: Kristbjörn Óskarsson.

Hlaup 17 ára og eldri: Jón Friđrik Einarsson.

Golf 16 ára og yngri: Agnar Dađi Kristjánsson.

Golf 17 ára og eldri: Axel Reynisson.

Hestaíţróttir 16 ára og yngri: Thelma Dögg Tómasdóttir.

Hestaíţróttir 17 ára og eldri: Svanhildur Jónsdóttir.

Skotíţróttir 17 ára og eldri: Kristján R. Arnarson

Blak 17 ára og yngri: Blakliđ - 4.fl. stúlkna.

Hér má skođa myndir af ţeim íţróttamönnum sem tilnefndir voru, og voru viđstaddir, í kjöri Íţróttamanns Húsavíkur.

                                           Jóna Rún

Jóna Rún Skarphéđinsdóttir hlaut Hvatningabikar Í.F

Jóna Rún Skarphéđinsdóttir hlaut hvatningarbikar Í.F. fyrir áriđ 2014 en hann er veittur árlega ţeim einstaklingi sem ađ mati stjórnar Bocciadeildar og ţjálfara sýnir bestu ástundun og mestu framfarir. Bikarinn er farandbikar gefinn af Íţróttasambandi Fatlađra og geymir handhafi bikarsins hann milli útnefninga.

Jóna Rún  hefur stundađ íţrótt sína í mörg ár og veriđ lengi međal öflugustu liđsmanna Bocciadeildarinnar og er nú í 1. deild.

Hún lćtur sig aldrei vanta á mót eđa annađ  sem  bođiđ er upp á hjá félaginu s.s. Húsavíkurmótum,  Norđurlandsmótum, Hćngsmótum á Akureyri , og Íslandsmótum. Hún hefur einnig veriđ viljug til allra annarra verka sem ţurft hefur ađ vinna og  veriđ virkur félagi í starfi Bocciadeildarinnar.

Jóna Rún er góđ fyrirmynd ţeirra sem stunda boccia. sl. vetur var hún tilnefnt til úrtöku á Norđurlandamót í boccia og lét ekki á sig fá ađ sćkja ćfingar fyrir ţađ til Akureyrar og Reykjavíkur. Jóna Rún tók ađ sér ađ vera ađstođarţjálfari hjá yngri flokknum í vetur og gerir ţađ međ ágćtum. Mćtir vel á ćfingar og dugleg ađ leiđbeina nýliđum okkar.

Áriđ 2014 var gott  Bocciaár  hjá Jónu,  og  er  hún vel ađ ţessari viđurkenningu komin og er góđur handhafi  “Hvatningabikars ÍF “




  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744