Íþróttamaður Húsavíkur 2011Íþróttir - - Lestrar 447
Eins og fram hefur komið hér á síðunni var Hafþór Mar Aðalgeirsson valinn Íþróttamaður Húsavíkur árið 2011 og var kjörinu lýst í gær. Bjarki Þór Jónasson varð í öðru sæti og Sigurður Unnar Hauksson í þriðja.
Umsagnir um þá kappa sem lesin var upp við þetta tækifæri birtast nú hér að neðan.
Hafþór Mar Aðalgeirsson
Um árangur hans sem besti Knattspyrnumaður ársins 2011 á Húsavík 17 ára og eldri segir:
” Hafþór hefur átt mjög gott ár 2011. Hann spilaði 21 leik með meistaraflokk Völsungs á tímabilinu og skoraði í þeim 9 mörk einnig tók hann þátt í landsliðsverkefnum U17 og U19 landsliða Íslands samtals 6 leiki. Haffi náði einnig að skora með landsliðinu í 1- 5 sigri Íslands á Wales. Haffi spilar að jafnaði stöðu hægri kantmanns og er andstæð-ingum sínum erfiður vegna hraða og snerpu. Hafþór hefur farið mikið fram sem leikmanni sem sést á því að hann er einungis 17 ára gamall og hefur nú þegar spilað 31 leik með meistarafl. Völsungs og 11 landsleiki. Það eru ófáar ferðirnar sem hann hefur flogið til Reykjavíkur á árinu 2011 til æfinga með landsliðum. Hafþór sinnir knattspyrnunni af miklum áhuga og ákafi hans innan vallar er stundum á mörkum þess að vera of mikill en það er greinilegt að þarna er á ferðinni mikið efni.
Utan vallar sinnir Hafþór námi við FSH ásamt öðrum áhugamálum sem oft hlítur að krefjast mikillar skipulagningar og góðs stuðnings fjölskyldu.
Hafþór er vel að tilnefningu knattspyrnumanns ársins 17 ára og eldri 2011”
Árangur Hafþórs Mar á knattspyrnuvellinum í íþrótt sinni er frábær og slíkur metnaður og sigrar ætti að vera mikil hvatning fyrir annað ungt íþróttafólk á Húsavík.
Hafþór Mar hefur þrátt fyrir ungan aldur áður verið valinn knattspyrnumaður ársins á Húsavík, stendur nú efstur í vali á Íþróttamanni Húsavíkur fyrir árið 2011 og sýnir og sannar að hann er frábær íþróttamaður og vel að þessum titli kominn.
Bjarki Þór Jónasson
Bjarki sem aðeins var 16 ára á liðnu ári, hefur æft og spilað með öllum yngri flokkum Völsungs. Hann æfði mjög vel í byrjun árs þó hann ætti við meiðsli að stríða sem honum tókst svo að vinna bug á þegar leið á vorið.
Hann var valinn í úrtökuhóp U-16 ára karlaliðs Íslands og endaði með því að vera valinn í lið Íslands 2 sem tók þátt í Norðulandamótinu sl. sumar, en það var að þessu sinni haldið hér á landi og fóru leikirnir fram hér norðanlands.
Bjarki spilaði meðal annars í hjarta varnarinnar í liði Íslands 2 hér á Húsavíkurvelli og náði einnig að skora eitt mark fyrir lið sitt sem hafnaði í fjórða sæti á mótinu aðeins hársbreidd frá því að leika til úrslita við lið Íslands 1, en lið Íslands 1 stóð svo uppi sem sigurvegari mótsins eftir sigur á Dönum.
Bjarki lék með 3.fl. Völsungs og fór oft mikinn á vellinum jafnt sem miðvörður eða miðvallarleikmaður og var það mál manna í „brekkunni“ að þarna væri mikill „refur“ á ferð og má umbúðalaust kvitta undir það.
Um miðbik sumars fór Bjarki að banka nokkuð þungt á dyr meistaraflokks Völsungs, þessi högg þyngdust er leið á seinni umferð ísl.mótsins og endaði svo með því að dyrnar gáfu sig.
Þarna var ekki aftur snúið hjá Bjarka og tók hann þátt í síðustu leikjum mfl. Völsungs sumarið 2011 og stóð sig með miklum „bravör“.
Bjarki er því vel að þessari viðurkenningu kominn.
Sigurður Unnar Hauksson
Skotfélag Húsavíkur tilnefnir Sigurð Unnar Hauksson sem skotíþróttamann Húsavíkur. Sigurður náði frábærum árangri á árinu og ber þar helst að nefna þegar hann varði Íslandsmeistaratitil sinn í unglingaflokki með glæsilegum árangri þegar hann skaut 100 af 125 dúfum. Verður það að teljast eftirtektarvert skor þar sem Sigurður hefur aðeins stundað skotfimi í 2 ár.
Lagði hann þá meðal annars fyrrum fjórfaldan Íslandsmeistara.
Þá varð Sigurður einnig bikarmeistari unglinga á árinu.
Á innanfélagsmótum stóð Sigurður sig einnig mjög vel og endaði á verðlauna-palli á öllum mótum sem hann tók þátt í.
Þessum árangri má meðal annars þakka að Sigurður hefur verið undir handleiðslu eins af landsliðsmönnum Íslands sem kom sérstaklega til Húsavíkur til að þjálfa hann.
Þá hefur Sigurður einnig farið þó nokkrar ferðir suður til æfinga, kom það til út af eftirtektarverðum árangri hans árið 2010.
Það má með sanni segja að þessar æfingar hafi skilað sér eins og sjá má á hans árangri nú á árinu.
Sigurður hefur mikinn metnað og hefur lagt mikið á sig til að ná þessum árangri og er hann góð fyrirmynd fyrir þá sem vilja stunda og ná árangri í skotíþróttum.
Sigurður er efnilegur skotmaður þó ungur sé aðeins 17 ára og á eftir að ná langt í íþróttinni haldi hann áfram á þessari braut.
Tilnefingar til kjörs á Íþróttamanni Húsavíkur 2011 voru eftirfarandi:
Knattspyrna 16 ára og yngri Bjarki Þór Jónasson.
Knattspyrna 17 ára og eldri Hafþór Mar Aðalgeirss.
Handknattleikur 16 ára og yngri Heimir Pálsson
Handknattleikur 17 ára og eldri Alexander G Jónasson
Frjálsíþróttir 16 ára og yngri Brynjar Örn Arnarsson
Frjálsíþróttir 17 ára og eldri Selmdís Þráinsdóttir
Skíði 16 ára og yngri Fannar R Þorláksson
Skíði 17 ára og eldri Kristófer R Þorláksson
Sund 16 ára og yngri Valdís Jósefsdóttir
Fimleikar 16 ára og yngri Huld Grímsdóttir
Fimleikar 17 ára og eldri Jónína Rún Agnarsd.
Boccia 16 ára og yngri Lena Kristín Hermannd.
Boccia 17 ára og eldri Kristbjörn Óskarsson
Golf 16 ára og yngri Reynir Örn Hannesson
Golf 17 ára og eldri Birna Dögg Magnúsd.
Hestaíþróttir 16 ára og yngri Dagný Anna Ragnarsd.
Hestaíþróttiir 17 ára og eldri Einar Víðir Einarsson
Skotíþróttir 17 ára og eldri Sigurður Unnar Haukss.