Íslandsbanki styður við bakið á Völsungi

Völsungur og Íslandsbanki á Húsavík hafa gert með sér samstarfssamning til eins árs um stuðning bankans við allar deildir félagsins.

Íslandsbanki styður við bakið á Völsungi
Fréttatilkynning - - Lestrar 620

Jónas Halldór og Höskuldur Skúli.
Jónas Halldór og Höskuldur Skúli.

Völsungur og Íslandsbanki á Húsavík hafa gert með sér samstarfssamning til eins árs um stuðning bankans við allar deildir félagsins.

Samningurinn mun styðja við bakið á félaginu í þeim störfum sem það innir af hendi.

Íslandsbanki hefur stutt dyggilega við bakið á Völsungi undanfarin ár og er þetta framlenging á því góða samstarfi. 

„Þetta er einn þáttur Íslandsbanka í að styðja við samfélagið sem bankanum og okkur starfsfólki er umhugað um.  Starfsemi Völsungs er mjög mikilvæg fyrir svo margar sakir og er í raun algjörlega ómissandi,“ segir Höskuldur Skúli Hallgrímsson útibússtjóri Íslandsbanka.

Eins og fram hefur komið er samningurinn til eins árs og mun hann styðja við bakið á öllum deildum félagsins. Samningurinn er mikilvægur félaginu og mun tryggja framgöngu félagsins á árinu.

Jónas Halldór og Höskuldur Skúli

Það voru Jónas Halldór Friðriksson, framkvæmdastjóri Völsungs, og Höskuldur Skúli Hallgrímsson, útibússtjóri Íslandsbanka á Húsavík, sem skrifuðu undir samstarfssamninginn í útibúi Íslandsbanka í dag.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744