Ísland Evrópumeistari smáþjóða í blaki kvenna

Kvennalið Íslands í blaki keppti til úrslita á Smáþjóðaleikum í Lúxemborg í dag.

Ísland Evrópumeistari smáþjóða í blaki kvenna
Íþróttir - - Lestrar 187

Kristey, Sigrún Marta og Edda Heiðrún.
Kristey, Sigrún Marta og Edda Heiðrún.

Kvennalið Íslands í blaki keppti til úrslita á Smáþjóðaleikum í Lúxemborg í dag.

Leikið var gegn Skotum og var um æsispennandi leik að ræða þar sem Ísland hafði betur, 3-2.

Áður hafði Ísland unnið Norður-Írland örugglega 3-0 og Lúxemborg 3-2.

Eins og áður hefur komið fram á Völsungur þrjá leikmenn í liðinu.

Það eru þær Heiðdís Edda Lúðvíksdóttir, Kristey Marín Hallsdóttir og Sigrún Marta Jónsdóttir sem voru að taka þátt í sínu fyrsta móti með A-landsliðinu.

Aðsend mynd

Ljósmyndir fengnar af Fésbókarsíðu Blakdeildar Völsungs.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744