Ingunn St. Svavarsdóttir er listamaður Norðurþings 2025

Listamaður Norðurþings 2025 er Ingunn St. Svavarsdóttir, betur undir listamannsnafninu YST.

Listamaður Norðurþings 2025 er Ingunn St. Svavarsdóttir, betur undir listamannsnafninu YST.

Ingunn er fædd árið 1951 á Egilsstöðum og ein af fyrstu íbúum bæjarins. Hún lærði sálfræði á Íslandi og í Gautaborg í Svíþjóð, með sérhæfingu í barna- og fjölskylduráðgjöf. Hún starfaði á því sviði í áratug, fyrst hjá Dagvist barna í Reykjavík, þar sem hún sinnti yfir 30 leikskólum, og síðar sem fyrsti heilsugæslusálfræðingur landsins í Norður-Þingeyjarsýslu.

Ingunn sinnti einnig stjórnmálum og var sveitarstjóri í 12 ár – fyrst í Presthólahreppi og síðar eftir sameiningu í Öxarfjarðarhreppi. Þar átti hún m.a. þátt í stofnun Fjallalambs á Kópaskeri og hitaveitu í Öxarfirði – mikilvægum framfaraskrefum fyrir svæðið.

Árið 1999 tók Ingunn nýja stefnu í lífinu og hóf nám í myndlist við Myndlistarskólann á Akureyri, en síðar mastersnám við Newcastle-háskóla á Englandi. Á sama tíma breyttu hún og eiginmaður hennar, Sigurður Halldórsson, gömlum bragga í Öxarfirði í sýningar- og vinnurými listafólks: Bragginn Yst.

Síðan 2004 hefur Ingunn haldið árlegar sýningar í Bragganum Yst, gjarnan í tengslum við Sólstöðuhátíðina á Kópaskeri. Hún hefur einnig tekið þátt í yfir 70 listsýningum, bæði einkasýningum og samsýningum, víða um land og erlendis.

YST vinnur með fjölbreytta miðla: hún hefur málað, teiknað, tekið þátt í gjörningum og skapað inni- og útiskúlptúra bæði úr málmum og tré.

List hennar sameinar innsýn í sálarlífið, tengsl við náttúruna og sterk félagsleg og femínísk sjónarhorn. Verkin fjalla meðal annars um breytileika manneskjunnar, fegurð, breyskleika og von.

Sýningin í sumar í Bragganum Yst ber heitið Viðrun vonanna
Þar dregur hún fram mikilvægi vonarinnar – sem veitir fólki innri styrk, dregur úr kvíða og streitu, og ýtir undir jákvæðni og þróun – bæði hjá einstaklingum og í samfélaginu.

Nánari upplýsingar og sýnishorn af verkum Ingunnar má finna á heimasíðu hennar: www.yst.is

Ljósmynd Hafþór

Listamaður Norðurþings, Ingunn St. Svavarsdóttir, ásamt Nele Marie Beitelstein fjölmenningarfulltrúa Norðurþings.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744