Íbúafundir í NorðurþingiFréttatilkynning - - Lestrar 218
Bæjarstjórn Norðurþings stendur fyrir íbúafundum í sveitarfélaginu í október.
Íbúar eru hvatttir til að mæta og koma sjónarmiðum og hugmyndum sínum á framfæri sem stuðla geti að betra samfélagi fyrir okkur öll.
Fundirnir verða eins og hér segir;
- Húsavík og nágrenni 23. október kl. 20:00. Húsnæði Framhaldsskólans á Húsavík.
- Raufarhöfn, 24. október kl. 17:00. Grunnskólinn Raufarhöfn
- Kópasker, Öxarfjörður og Kelduhverfi, 24. október kl. 20:00. Mötuneyti Öxarfjarðarskóla.
Stefnt er á að fyrirkomulag verði með eftirfarandi hætti. Fundarmenn skipta sér í þrjá hópa eftir áhugasviði og eru þeir sem hér segir:
Félagsmálahópur, Æskulýðsmál, Menningarmál, Menntamál, Félagsþjónusta
Umhverfishópur, Skipulagsmál, Úrgangsmál, Framkvæmdir, Samgöngumál
Atvinnumálahópur, Fjármál, Byggðakvóti, Orkumál / nýting – tækifæri, Nýsköpun
Að lokinni hópavinnu verður gert grein fyrir helstu niðurstöðum og þær teknar til umræðu í lok fundar.
Ungir sem aldnir íbúar í Norðurþingi eru hvattir til að mæta og nýta tækifærið að koma skoðunum og hugmyndum sem kviknað hafa t.d. við eldhúsborðið eða á kaffistofunni á framfæri við stjórnendur sveitarfélagsins.
F.h. bæjarstjórnar
Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri.